75 kg
átaksblogg í pásu
28.06.2008 19:46:22 / 75kg

Nýtt blogg

Nýtt blogg og slóðin á það er www.75kg.bloggar.is endilega kíkið þangað!!!! :)

» 0 hafa sagt sína skoðun

24.02.2008 16:50:47 / 75kg

Lélegur bloggari.is

Já ég held að ég hljóti að fá þessa tilnefningu alveg skammarlaust sko, ekki alveg að standa mig í neinu þessa dagana!!! Ég var aldeilis með stóru orðin á síðustu helgi ætlaði svo svakalega að standa mig og bla bla bla. Svo hviss bang bung ég orðin fárveik og stóð ekki upp úr rúminu alla vikuna. Var með 39 stiga hita frá mánudegi og fram á föstudag og það var sko aldeilis ekki skemmtilegt!!!!!!!!

Jæja, eina sem ég hugsaði þegar ég varð veik, jæja ég missi þá allavega lystina og get ekkert borðað, ég þá kannski grennist eitthvað á meðan ég verð veik, alltaf að horfa á björtu hliðarnar! Aldeilis ekki mín missti bara ekki mikla lyst skal ég segja þér og borðaði eins og svín alla vikuna og lá í rúminu, meiri vitleysan. Svo er manni alltaf svo vorkennt að það er keyptur is og nammi og hvað finnst þér nú best að borða og svo framvegis, þannig að enginn léttingur þessa vikuna frekar en aðrar!!!!!!!

Svona er lífið, þýðir lítið að vera ergja sig á því, en í ræktina ætla ég á morgun, þó að það verði massa pirrandi að vera búin að missa svona mikið þrek og þol, get varla gengið upp stiga án þess að mér líði eins og áttræðu gamalmenni vegna andarteppu. Svona er allavega að vera ég þessa dagana, vonandi verður vikan betri hjá mér núna, og hjá öllum hinum líka!!! :)

» 3 hafa sagt sína skoðun

17.02.2008 19:33:19 / 75kg

Vó bara alveg nýtt kerfi hérna

Það er bara allt að gerast hérna, allt nýtt og breytt og maður skilur hvorki upp né niður. Þá kannski fer maður að nenna blogga meira, ef þetta kerfi virkar eitthvað betur!!! ;)
En annars er allt við það sama, nema að ég er búin að eiga risastórann nammidag þessa helgina, hehe semsagt alla helgina, geðveikt dugleg ég.

Ég hljóp milli 30 og 40 km í síðustu viku, svona frekar slappt en það er svosem allt í lag. En núna ætla ég að setja mér markmið, fram að páskum. Ætla að reyna að koma mér í betra form með mataræðið, ætla að reyna svindla ekkert fram að páskum já sæll!!!! Já ég ætla að reyna það og ég ætla að standa við það!!!!!!!! Og hana nú! :)

» 3 hafa sagt sína skoðun

11.02.2008 21:46:27 / 75kg

Blog.central.drasl

Þetta er alveg óþolandi drasl, ég veit ekki hvað ég er oft búin að reyna blogga og hvað ég er oft búin að reyna að opna síðuna og ekkert gerist, garggg!!!

Annars er allt við það sama hjá mér, upp og niður og upp og niður!!!! Var 92.6 síðast þegar ég vigtaði mig, sem var á fimmtudaginn síðasta, ég virðist alltaf fara niður um 2 kg og upp aftur um þau, bara pirrandi sko.

Er samt búin að vera dugleg í ræktinni, í síðustu viku hljóp ég samtals 40 til 45 km, kem með betri færslu seinna! :)


» 3 hafa sagt sína skoðun

03.02.2008 18:42:06 / 75kg

Blogga eða ekki blogg??????????

Já þetta gengur eitthvað hægt hjá mér, það er að segja að blogga og já líka að léttast!!! Arg, eitthvað voðalega erfitt hjá mér þessa dagana!!! En það þýðir litið annað en að rífa sig upp á rassgatinu og halda áfram. Mér gengur bara ótrúlega vel á virkum dögum, svo hrynur allt um helgar og allt fer í mínus. Er rosalega dugleg að æfa, mæti alltaf kl 6 í ræktina áður en að ég fer í skólann og svo stundum líka eftir skóla. En það er alltaf það sama sem er að hrjá mig, bölvað mataræðið!!!!!!!!!!!!!

 En ég meina, það þýðir lítið annað en að taka bara á því og halda áfram og áfram!!! Ætti kannski bara að fara taka mánaðarlegar myndir og sjá hvort ég muni sjá einhvern árangur. Ég fór mest upp í 94.9 núna þessa dagana og datt svo niður í 92.6, ægilega ánægð og svo kom helgi og allt hrundi. HMMMMMM hef nú ekki vigtað mig í nokkra daga núna, en ég mun gera það í lok vikunnar og koma með einhverjar tölur!!! Hvort sem þær verða hærri eða lægri.

Fór í hrikalegt bollukaffi í dag og gúffaði í mig bollum. Hafði þá farið í ræktina og skokkað 5 km áður, hehe, ægilega mikið að réttlæta þetta eitthvað. Æ whatever, nú er bara að halda áfram og hana nú!!!!


» 4 hafa sagt sína skoðun

15.01.2008 21:06:16 / 75kg

Upp upp og niður niður ...............

Já þetta mjakast, vonandi allavega, hef nú svosem ekki vigtað mig frá því á föstudaginn, en ég vona allavega að eitthvað sé að gerast. Er búin að vera mjög dugleg síðustu daga. Ég borðaði spelt lasagna í kvöld og er eitthvað samt alveg að drepast í eitthvað nart núna, finnst ég vera að missa vitið því mig langar svo í eitthvað. En ég ætla að hemja mig, fer að sofa eftir 2 tíma og þangað til er það bara tyggjó.

Þegar manni langar svona rosalega í eitthvað, þá fer ég alltaf að pæla í því hvað þetta gangi nú hægt og að það skipti nú engu að fá sér smá, en nú er ég að hemja mig.is og hana nú. ÉG ÆTLA EKKI AÐ FÁ MÉR NEITT! ;)


» 7 hafa sagt sína skoðun

13.01.2008 18:32:34 / 75kg

Ný markmið nýr tími

Og hana nú. Já síðasta vika gekk bara mjög vel, náði bara alveg að hemja mig eins vel og ég bjóst bara við allavega! En já ég datt í það svo um helgina, þá meina ég svona áfengislega séð, hehe, en já ég fór á djammið í fyrsta skipti í MARGA mánðui, hehe og það fylgdi að sjálfsögðu með óhollustuneysla, en ég vissi það alveg fyrirfram og það var allt í lagi.

En já ný markmið, já ég ætla að ná því að vera 85 kg um páskana, nánar tiltekið þann 23. mars, mér líst vel á þá dagsetningu. Ég nefnilega fór í vigtun fyrir helgina og OMG hvað ég hef þyngst mikið, ég átti ekki alveg von á svona mikilli þyngingu, en hey ok, það er bara að rífa sig upp og halda áfram, þetta er endalaus barátta, já ég verð víst að segja ykkur hræðilegu töluna, hún var 94 kg, hvorki meira né minna, en hér segi ég líka stopp og nú tek ég við, en ekki helv nammipúikinn og hana nú! Hef ekki ennþá komist í að lesa bloggin, en það er á dagskránni, vonandi gengur ykkur öllum vel! :)


» 1 hafa sagt sína skoðun

08.01.2008 19:14:20 / 75kg

Gleðileg jól og gleðilegt ár

Já sæll, bara ekkert búið að blogga í 1 og hálfan mánuð, alveg róleg á því bara! :) Jæja, svona er þetta bara stundum og ekkert við því að gera. Ég var í svo miklu stressi í nóv og des vegna prófs sem ég þurfti að fara í og það var svona ákveðið líkamlegt próf og þar af leiðandi fór ég að borða meira óhollt og bla þannig að já ég var að borða yfir stressið!!! Haha, svona er þetta, en ég náði nú prófinu þannig að þetta var nú allt í lagi.

Svo fór ég í aðgerð um miðjan des og leyfði mér eiginlega bara allt síðan þá, þannig að rassinn á mér er kominn með sér póstnúmer og svo framvegis. Ég ætla á vigt í næstu viku. Byrjaði í dag í nýju átaki, búin að fresta því í ansi marga daga, úff, en ég byrjaði í dag og mætti í ræktina í morgun og skokkaði nokkra km.

Jæja, ég er semsagt byrjuð og ætla að lesa bloggin ykkar, vonandi er ég ekki gleymd! ;)


» 4 hafa sagt sína skoðun

23.11.2007 18:47:46 / 75kg

News

Jæja, varð að koma með nýjar fréttir, síðustu tölur voru sumsé 92.7, ákvað svo bara samt að fara á vigtina í dag eins og áætlað var fyrir löngu og bjó mig vel og vandlega undir það að sjá 93 komma eitthvað, viti menn, tala dagsins er 91.3, semsagt 1.4 kg niður. En ég er nú samt ekkert að springa úr gleði með það, þar sem ég er búin að vera á rólinu þarna á milli í marga mánuði, þannig ég á alveg eins von á því að skjótast upp aftur, en við sjáum til. Mér finnst eitthvað vera að gerast um leið og ég sé 89 komma eitthvað, þá fyrst erum við að tala saman! :)


» 7 hafa sagt sína skoðun

21.11.2007 15:14:32 / 75kg

GARG

Já þetta heldur áfram að vera svona garg og pirrings blogg hjá mér eins og síðustu vikur. Æ ég verð bara aðeins að fá að pústa, þeir sem ekki nenna að lesa þurfa þess alls ekki! :) En svona er þetta bara. Ég semsagt tók þá afdrifaríku ákvörðun að stíga á blessuðu vigtina vinkonu mína eða þannig í dag og viti menn ég var búin að þyngjast, já ég ætti svosem að vera orðin vön því. En ef ég væri í einhverju sukki þá væri það eðlilegt, en ég er það alls ekki :( Jæja allavega hún sýndi mína þyngstu tölu í ansi langan tíma, 92.7 kg takk fyrir og bless.

Ég hef verið að æfa eins og geðsjúklingur í ansi langan tíma. Lyfti 3 x í viku og brenni líka alla þá daga og líka dagana sem eru á milli þeirra daga. Fer semsagt á æfingu um það bil 5 til 8 x í viku. Brennslan er að minnsta kosti alltaf í 40 mín eða lengur. Ok, ég er 181 á hæð og með ágætis vöðvamassa og samsvara mér ágætlega. Fór í fituprósentumælingu einhvern tímann í sumar og held ég hafi ekkert fitnað síðan þá, en þá var hún á milli 23 og 25 prósent, man það ekki alveg. Síðan þá hefur þyngdin verið sú sama nokkurn veginn nema í dag ca 1 og hálfu kg þyngri. Ég tek reyndar betagen þá daga sem ég æfi og það er einhvers konar kreatín blanda og er farin að lyfta töluvert þyngra. Og já ég veit að vöðvar eru þyngri en fita. En þar sem ég hef af nógu að taka þá fyndist mér nú allt í lagi að léttast aðeins sko, mér finnst ég nú ekki biðja um mikið miðað við allt sem ég legg á mig.

En allavega, nýja planið er að prófa að hlaupa úti 3 til 4 í viku og sjá hvað gerist. Hrmpf, ég er í smá fýlu, það fer ekki á milli mála. Og ég get líka sagt ykkur það að buxurnar mínar hafa bara ekkert víkkað, sem segir mér það að ég sé ekki einu sinni að breytast í vextinum, já eins og fyrirsögnin gefur til kynna GARG!


» 3 hafa sagt sína skoðun

20.11.2007 15:07:56 / 75kg

Tilraun nr. 1242345325

Taka nr. 4, ég held að þetta sé í 4. skiptið sem ég reyni að blogga og ekkert gerist. Alltaf búin að skrifa heljarinnar færslu og hún hverfur alltaf, blog.central.is drasl!!!! Jæja reyni allavega aftur og sé hvað gerist! Já ég ætlaði nú bara að þakka fyrir öll góðu kommentin og peppið það gerir ótrúlega mikið fyrir mann, ég verð að segja það. Það gerist nákvæmlega ekkert í mínum málum frekar en fyrri daginn, hehe ég er bara að verða orðin vön því. Vigtin haggast ekki, 400 gr niður og 800 gr upp og niður og upp og niður, já þið kannski náið þessu, en svona er þetta semsagt.

Annars er lítið að frétta ég er alltaf dugleg í ræktinni og nokkuð dugleg í mataræðinu þessa dagana, ætla að hafa vigtunardag á föstudaginn og sjá hvað blessuð vigtin segir við mig þá. :)


» 1 hafa sagt sína skoðun

14.11.2007 04:58:58 / 75kg

Miðvikudagur

Já þetta mjakast allt saman, bara kominn miðvikudagur!! Mánudagur og þriðjudagur alveg búnir að vera 100 % Bara nokkuð ánægð með það. Fór á lyftingaæfingu á mánudaginn og fór svo um kvöldið og hljóp 7 km. Fór svo á klukkutíma brennsluæfingu í Laugum í gær og hljóp 7 km um kvöldið. Ef ég fer ekki að léttast núna bráðum, þá mögulega snappa ég og þarf þá að leggja mig inn á geðdeild! :D

Annars var ég búin að ákveða að taka öðruvísi á þessari blessaðri vigt, ætla bara að vera geðveikt ánægð ef ég verð þyngri í næstu vigtun og hana nú, þannig að ég verð bara fúl ef ég léttist, þá hlýtur eitthvað að gerast, því þessi blessaða vigt vill ALLS ekki gleðja mig neitt núna þessar vikurnar. Við erum að tala um það að ég er búin að vera í sömu þyngd +/- 700 gr í 3 mánuði og ég er búin að æfa eins og geðsjúklingur!!!! Þetta er alveg að fara með mig. Ég hef alls ekki verið í einhverju alvöru sukki, trúið mér ég veit hvernig alvöru sukk er. Bara búin að vera í  nokkuð normal mat og frekar í léttari kantinum!!!! Jæja þýðir lítið að væla yfir þessu, maður verður bara að halda áfram og brosa! :lol:


» 6 hafa sagt sína skoðun

12.11.2007 19:20:02 / 75kg

Nýr dagur

Takk fyrir peppin, þið eruð algjört æði pæði!!!! Það þýðir víst ekkert að setjast niður og fara væla yfir þessu, þetta gerist þegar þetta á að gerast, ekki satt!!! Ég er að æfa svona að meðaltali 8 sinnum í viku, held ég, en mataræðið er svona upp og ofan! Hér með tek ég mataræðið með og ef það virkar ekki, hmmmm, já þá veit ég nú ekki alveg hvað ég geri! Ætli það verði þá ekki fitusog næst á dagskrá, hehe, nei ég segi nú bara svona.

Já ég ætla að taka 5 vikur núna, eða 6 vikur fram að jólum og sjá hvort að það hefur einhver áhrif, ætla ekki að taka neina nammidaga og reyna að halda mér innan ákveðinna marka. Ætla að lesa bloggin ykkar í kvöld og fá innblástur!!! Gangi ykkur öllum rosalega vel!! :)


» 1 hafa sagt sína skoðun

02.11.2007 07:44:02 / 75kg

Þunglyndi.is

Þetta er alveg að verða óþolandi sko, ég er bara búin að þyngjast þessa vikuna, já góðir lesendur ÞYNGJAST!!!!!!!!!!! 91 kg var staðreynd dagsins. Ég er bara pirruð. Ég æfi eins og brjálæðingur, það er ekki hægt að kenna vöðvamyndun um, því ég er ekkert að æfa öðruvísi en ég er búin að vera æfa í nokkur ár, smá pirripú í gangi. Mataræðið er bara ágætt, bara normal, ekkert rosa megrunarfæði. Ég sé það að ég þarf að fara í svelti!!!!!!! Jæja, ætla að reyna hætta vera pirruð! Mig vantar pepp!!!!!!! :(

» 8 hafa sagt sína skoðun

29.10.2007 21:19:13 / 75kg

Monday

Mánudagur til mæðu...................... er það nokkuð, nei nei ég ætla allavega ekki að hafa hann svoleiðis! :) Já mér gengur alltaf bara eins, upp og niður upp og niður upp og niður. Algjört jójó er ekki alveg að fíla þetta sko. Steig á vigtina á föstudaginn og í dag, 90.5, nákvæmlega það sama. Ég gæti rifið af mér hárið í hvert fokking skipti sem ég stíg á vigtina, ég er búin að vera það sama í nokkra mánuði, já nokkra mánuði. Ég missi vitið bráðum. Ég er rosa dugleg í ræktinni og er búin að vera það lengi. Mataræðið er svona já oft mjög gott, stundum arfaslakt. En það er semsagt mataræðið sem vantar ég geri mér fyllilega gein fyrir því. Þarf bara að vinna í þessu. Dettur bara aldrei neitt sniðugt í hug til að elda búhú! Nenni ekki að skrifa meira, er í smá fýlu yfir vigtinni!

» 4 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 18